Forsíða Undirbúningur ferðar Dagskrá Skráð lið Reglur Um mótið Úrslit Hraðmóts 2011 Úrslit í riðlakeppni 2011 Ljósmyndir Video frá 2006

 













14.8.2011 20:33
Myndir og myndband frá mótinu 2011

Fótbolti.net var með myndavélina á lofti á mótinu í ár, hér fyrir neðan er hægt að sjá myndband og myndir frá mótinu:

Myndband

Myndaveisla frá fyrsta degi(1/2)
Myndaveisla frá fyrsta degi(2/2)
Myndaveisla frá öðrum degi(1/3)
Myndaveisla frá öðrum degi(2/3)
Myndaveisla frá öðrum degi(3/3)

Myndaveisla frá lokadegi(1/2)
Myndaveisla frá lokadegi(2/2)

7.8.2011 15:38
Meistaradeild Olís 2011 LOKIÐ

Mikil spenna var í lokaleikjum Meistaradeild Olís þetta árið og réðust úrslit mótsins ekki fyrr en í lokaleikjum mótsins. ÍBV og Þór unnu keppni A-liða, FH og Þór báru sigur í keppni B-liða, KR og ÍR fóru með sigur af hólmi í keppni C-liða, í D-liðunum vann Þór og FH, í E-liðunum sigruðu Breiðablik og ÍBV, það voru svo KR-ingar sem unnu keppni F-liða. Aldrei áður hefur mótið verið eins stórt og vill Knattspyrnudeild Selfoss þakka keppendum og aðstandendum fyrir komuna á Selfoss.

Með því að smella hér er hægt að sjá úrslit í riðlakeppninni á laugardegi og sunnudegi

6.8.2011 16:41
Úrslit dagsins(6. ágúst 2011)
Boltinn hélt áfram að rúlla í Meistaradeild Olís í dag. Mikil tilþrif mátti sjá á mótinu og er það mál manna að aldrei hafi mótið verið eins sterkt. Hægt er að sjá úrslit dagsins með því að smell á: ,,Lesa meira" hér að neðan.
Lesa meira...
5.8.2011 21:19
Fyrsta degi í Meistaradeild Olís 2011 lokið
Þá er fyrsta degi í Meistaradeild Olís 2011 lokið. Segja má að mótið fari vel á stað þrátt fyrir rigninguna og létu knattspyrnustöðnunar í það minnsta veðrið ekki hafa áhrif á sig og sýndu glæsileg tilþrif.

Hér er hægt að sjá úrslit dagsins(líka undir Hraðmót 2011 hér að ofan)

Hér er hægt að sjá leikjaplan morgundagsins (líka undir Riðlakeppni 2011 hér að ofan)

Vill knattspyrnudeild Selfoss biðjast velvirðingar á því að ekki var hægt að uppfæra úrslit dagsins jafnóðum en vonumst við eftir að geta gert það á morgun og sunnudaginn.